Heim

Bækur, uppspretta aukinna lífsgæða

Bókameðferð til Íslands

Esther Ágústsdóttir, eigandi Bókmenntaskólans var viðstödd styrkafhendingu á dögunum vegna verkefnisins Bækur, uppspretta lífsgæða, sem Esther Ágústsdóttir og Elín Guðbjörg Bergsdóttir, fulltrúar Bókmenntaskólans, munu vinna í samstarfi við Borgarbókasafn. Verkefnið snýr að því að fá Bijal Shah hjá Book Therapy (https://www.booktherapy.io/) til Íslands til að kynna bókameðferð. Í framhaldinu verða Esther og Elín með lestarhópa á Borgarbókasafninu þar sem þær vinna eftir hugmyndafræði bókameðferðar og jafningjastuðnings. Til að lesa nánar um verkefnið smellið á hlekkinn fyrir ofan.

30. júní 2026.

Námskeið um Sturlungu / Kakalaskáli

Einar Kárason rithöfundur, Óttar Guðmundsson geðlæknir og rithöfundur, Sigríður Sigurðardóttir sagnfræðingur og Sigurður Hansen sérfræðingur í Sturlungu þræða sig í gegnum átakatíma 13. aldar og draga fram það sem þeim finnst mestu máli skipta í hinni flóknu Sturlungu. Námskeiðið nýtist öllum sem hafa lágmarksþekkingu á Sturlungatímanum, en einnig þeim sem hafa farið á dýptina.

Frá 31. mars 2023


Bókastuðningur jafningja

Langar þig að lesa bækur um mannlegt eðli og ræða þær við jafningja? 

Bókastuðningur jafningja gengur út á að lesa og ræða valdar bókmenntir í hópi jafningja, skáldaðar eða óskáldaðar. Meðal viðfangsefna eru andleg heilsa, ekki síst geðrænar áskoranir. Markmiðið er að þátttakendur bæti lífsgæði sín í gegnum bókmenntir. Hafir þú áhuga á bókastuðningi jafningja hafðu þá samband. Esther Ágústsdóttir heldur utan um starfið.

Hafa samband / Contact

Endilega sendu okkur línu og við verðum í sambandi. / Don’t hesitate to contact us and we will get back to you.

← Back

Your message has been sent