Ert þú sérfræðingur eða áhugamanneskja um bókmenntir?

Langar þig að lesa bækur um mannlegt eðli og ræða þær við jafningja?
Bókastuðningur jafningja gengur út á að lesa og ræða valdar bókmenntir í hópi jafningja, skáldaðar eða óskáldaðar. Meðal viðfangsefna eru andleg heilsa, ekki síst geðrænar áskoranir. Markmiðið er að þátttakendur bæti lífsgæði sín í gegnum bókmenntir. Esther Ágústsdóttir heldur um þessar mundir utan um Lífsgæðaleshring í Sólheimasafni, Reykjavík.
Við erum alltaf opin fyrir samstarfi. Ef þú hefur áhuga á bókastuðningi jafningja, endilega settu þig í samband við okkur í gegnum síðuna, eða skrifaðu okkur á bokmenntaskolinn@gmail.com
(+354) 8680882
